Grindavíkurbær hélt upp á 40 ára kaupstaðarafmæli sitt síðasta fimmtudag. Mikið var um að vera á sjálfan afmælisdaginn. Guðfinna Magnúsdóttir myndaði helstu viðburði og hér getur að líta myndasyrpu frá nokkrum viðburðum.
Vel á annað hundrað krakkar 3-8 ára mættu í íþróttahúsið til þess að taka þátt í íþróttafjöri, þar á meðal þessi ungi kappi.
Margrét Rut, sem jafnframt á sæti í afmælisnefnd bæjarins, er hér að stjórna elstu krökkunum í íþróttafjörinu.
Krakkarnir í íþróttafjörinu voru reyndar á öllum aldri!
Afmæiskaffi var í öllum stofnunum bæjarins. Hér er hluti af starfsfólkinu á bæjarskrifstofunum.
Kristín, Þorgerður og Diana voru í hátíðarskapi.
Afmælisterturnar runnu ljúflega niður.
Grindavíkurbæ bárust góðar gjafir og kveðjur í tilefni dagsins.i
Frábær mæting var á Grindavíkurkróniku á kaffihúsinu Bryggjunni.
Aðalgeir Jóhannsson vert á Bryggjunni tók sjálfur fram gítarinn og tók lagið og sagði sögur.
Kaffihúsið Bryggjan.
Vinsælasti uppistandari landsins, Ari Eldjárn, fór á kostum á tveimur skemmtunum. Annars vegar skemmti hann í grunnskólanum fyrir 7.-10.bekk og hins vegar í Kvikunni fyrir 16 ára og eldri. Skemmtanirnar voru vel sóttar og Ari í góðum gír.
Gestir í Kvikunni voru á breiðum aldri og kunnu vel að meta Ara Eldjárn.
Ari Eldjárn.
Ari Eldjárn á sviðinu.
Diskótek var í Þrumunni fyrir 4.-6. bekk. Þar var aldeilis stuðið eins og þessi mynd ber með sér.
Þessir hressu peyjar voru á diskótekinu í Þrumunni.
Og þessar skemmtilegu stelpur voru einnig í Þrumunni.
Gestir í morgunsundinu fengu afmælistertu í tilefni dagsins.