Forsetahjónin heimsóttu m.a. grunnskólann við Ásabraut þegar Grindavíkurbær hélt upp á 40 ára kaupstaðaraafmæli sitt síðasta fimmtudag. Tekið var á móti þeim á sal þar sem nemendur skólans höfðu safnaðst saman. Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands ávarpaði nemendur og bauð upp á spurningar frá nemendum og fékk þau til að segja sér hvað væri það skemmtilegasta við Grindavík.
Ólafur Ragnar var m.a. spurður að því hversu gamall hann væri og Dorri var spurð að því hversu ung hún væri!
Forsetahjónin skoðuðu svo sýninguna um sögu Grindavíkur sem nemendur unnu að í Þemavikunni og fannst þeim mikið til koma.
Myndirnar tók Guðfinna Magnúsdóttir.