Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands og Dorrit Moussaieff forsetafrú komu í opinbera heimsókn til Grindavíkur á 40 ára kaupstaðarafmæli Grindavíkurbæjar í gær. Þau byrjuðu á því að fara í Hópsskóla þar sem fjórir nemendur tóku á móti þeim með blómvöndum. Forsetahjónin skoðuðu afrakstur þemavikunnar í skólanum um sögu Grindavíkur.
Þá sungu nemendurnir Ísland er land þitt fyrir forsetahjónin og nemendurnir fengu að leggja spurningar fyrir forsetann. Hann var m.a. spurður að því hvernig væri að leika í áramótaskaupinu.
Myndir: Guðfinna Magnúsdóttir.