Kæru Grindvíkingar! Fyrir hönd bæjarstjórnar Grindavíkur vil ég óska ykkur innilega til hamingju með daginn.
Þann 24. janúar árið 1974 á 94. löggjafarþingi Alþingis flutti Oddur Ólafsson þingmaður frumvarp til laga er varðaði kaupstaðarréttindi Grindavíkurhrepps. Lagður var fram undirskriftalisti 566 íbúa Grindavíkur sem þá voru um 75-80 prósent kosningabærra manna. Í áskoruninni kom eftirfarandi fram: „Við undirritaðir Grindvíkingar skorum á hv. Alþingi og ríkisstjórn að veita Grindavíkurhreppi kaupstaðarréttindi nú þegar og binda þar með endi á hið óþolandi ástand, sem nú ríkir í málefnum Grindvíkinga með tilliti til þjónustu hins opinbera." Þarna var vísað í aðgang íbúa að sýslumanni sem stuttu áður hafði verið fluttur frá Hafnarfirði til Keflavíkur og hentaði það Grindvíkingum einkar illa enda tíðar áætlunarferðir frá Grindavík til höfuðborgarsvæðisins en engar til Keflavíkur.
Það var svo þann 10. apríl, fyrir 40 árum síðan, að Grindavíkurhreppur fékk kaupstaðarréttindi þó að bæjarfógetinn hafi reyndar ekki fylgt með.
Leyfum þessari baráttu að minna okkur á að við megum aldrei hætta að berjast fyrir þeirri þjónustu ríkisins sem við höfum svo sannarlega rétt á, svo sem á sviði löggæslu og heilbrigðisþjónustu.
Grindavík hefur stækkað ört á síðustu 40 árum og má nefna að á þessum árum hefur íbúafjöldinn vaxið úr 1600 í tæplega 2900. Gaman er að geta þess að íbúaþróunin hefur verið í samræmi við íbúaspá sem sett var fram í Aðalskipulagi Grindavíkur árið 1983.
Þegar áður nefnt frumvarp var lagt fram fjallaði rökstuðningur þess að mestu leiti um mikilvægi og stærð Grindavíkur sem hafnar og verbúðar. 54 bátar voru þá gerðir út frá Grindavík en á vetrarvertíðum gat sá fjöldi nær þrefaldast. Enn er Grindavík einn öflugasti útgerðarbær landsins og eigum við sjávarútveginum svo sannarlega margt að þakka. Það hefur verið einkar ánægjulegt að fylgjast með útgerðum Grindavíkur aðlaga sig að breyttum aðstæðum í sjávarútvegi, til dæmis með nýsköpunarfyrirtækjum á borð við Codland og verður gaman að fylgjast áfram með þeirri þróun.
En Grindavíkurbær hefur einnig markað sér stöðu í öðrum atvinnugreinum og má þar einnar helst nefna ferðamannaiðnaðinn. Síðustu ár hefur ferðamönnum fjölgað verulega í Grindavík enda er bærinn í nágrenni við einn fjölsóttasta ferðamannastað landsins, Bláa Lónið sem dregur að hundruðir þúsunda gesta á hverju ári.
Menningarlíf Grindavíkur hefur einnig blómstrað á síðustu árum og er Menningarvikan orðinn fastur liður í viðburðarskrá Grindavíkurbæjar og þekkt um allt land. Í Menningarvikunni gefst íbúum, sem og öðrum gestum, meðal annars tækifæri til að upplifa þá miklu menningarsköpun sem á sér stað í bæjarfélaginu.
Sem íbúi Grindavíkur þreytist ég ekki á að dásama bæinn okkar enda er margt sem við getum verið stolt af. Okkur hefur tekist að búa til fjölskylduvænan bæ með öflugum menntastofnunum, íþróttalífi og tómstundarstarfi fyrir börnin okkar. Með uppbyggingu á aðstöðu fyrir bókasafn, tónlistarskóla og íþróttastarfsemi blómstrar bærinn sem aldrei fyrr. Grindavíkurbær er vel statt sveitarfélag og búum við yfir miklum tækifærum, tækifærum sem hægt er að nýta til þessa að bærinn okkar geti vaxið og dafnað enn frekar í náinni framtíð.
Kæru Grindvíkingar. Í tilefni dagsins hefur afmælisnefndin sett saman glæsilega dagsskrá og á hún mikið hrós skilið fyrir vel unnin störf. Ég hvet ykkur til þess að taka þátt í hátíðarhöldunum og fagna þessum merkilega degi með okkur.
Marta Sigurðardóttir, bæjarfulltrúi