Grindavíkurkrónika á Bryggjunni
Það verður Krónika á BRYGGJUNNI í kvöld kl. 21:00. Að þessu sinni verður Krónikan tileinkuð 40 ára afmæli kaupstaðaréttinda Grindavíkur. Grindavíkur hreppur breyttist í Grindavíkurkaupstað, sjö bæjarfulltrúar í staðinn fyrir fimm hreppsnefndarmenn. Við ætlum að skarta Grindavíkursögum í bland við hugleiðingar og mjúkt gítarspil. Dagskráin er eftirfarandi:
- Ísleifur Haraldsson talar um vertíðar og braggalíf í upphafi sjöunda áratugarins. Ísleifur vann í Silfurhöllinni og bjó í Samvinnubragganum.
- Sverrir Vilbergsson les smásögu eftir Guðberg Bergsson sem fjallar um þá tilfinningu að eiga fullann pabba í Grindavíkurrútunni.
- Aðalgeir Jóhannsson les smásögu eftir melinn sem fjallar um Guðjón Hermannsson
- Kristinn Þórhallsson lætur gaminn geysa um menn og málefni aðallega þó um Grindvíkinga sem hann sér í spéspegli. Diddi rafvirki gerir grín að öllu og öllum en þó mest að sjálfum sér.
Krónikka á Bryggjuni í kvöld fimmtudaginn 10. apríl á afmælisdegi Grindavíkur kl 21
Það eru allir velkomnir meðan húsrúm leyfir