Selvogskaffi - sögu og kaffi ferđ í Selvog

  • Fréttir
  • 16. október 2008

  

Sunnudaginn 19. október kl. 15:00 - 16:00  verđur áhugaverđur fróđleikur um mannlíf og sagnir í Selvogi í bođi Biskupsstofu. Umsjónarađili: sjf menningarmiđlun.

 

 

Sögustund verđur  í Veitingahúsinu T-bć í Selvogi ţar sem gestum gefst kostur á ađ kaupa kaffi og međlćti auk ţess ađ hlusta á fróđleik ţeirra Jóhanns Davíđssonar, lögreglumanns og Ţórarins Snorrasonar, bónda á Vogsósum. Ţeir ţekkja báđir vel til í Selvogi og eru miklir áhugamenn um sagnir á ţessum kyngimagnađa stađ.

 

Selvogur tilheyrir Ölfusi. Leiđir ţangađ, t.d. um Krýsuvíkurveg og Ţorlákshafnarveg, bjóđa upp á hiđ fallegasta útsýni, bćđi til fjalls og fjöru. Strandarkirkja í Selvogi, er eins og kunnugt er, vinsćl til áheita. Um tilurđ kirkjunnar hafa myndast helgisagnir sem vitna um ţann lífsháska sem sjómönnum var búinn úti fyrir ţessari klettóttu, hafnlausu úthafsströnd. Á Vogsósum í Selvogi bjó séra Eiríkur (1638-1716) en margar galdrasögur eru til um hann. Jóhann og Ţórarinn munu segja frá kirkjunni, Eiríki og mörgu öđru fróđlegu og skemmtilegu í Selvogi.

 

 

Fyrirtćkiđ sjf menningarmiđlun hefur stađiđ fyrir sagnakvöldum víđsvegar á Reykjanesskaganum og gefiđ út bókina Sagnaslóđir á Reykjanesi I sem byggir á efni stađbundins sagnafróđleiks. Bókin verđur á sérstöku tilbođsverđi í tilefni dagsins.

 

 

Nánari upplýsingar hjá Sigrúnu Jónsd. Franklín, gsm 6918828/sjf@internet.is eđa   www.sjfmenningarmidlun.is

 

 

Veiđimanna- uppskerumessa verđur kl. 14 ţennan sama dag  í Strandarkirkju ţar sem allir eru velkomnir. Prestur sr. Baldur Kristjánsson.

 

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir