UM GRAL
Ţann 21. nóvember áriđ 2007 stofnuđu grindvískir atvinnuleikarar formlega til
félagsskaparins GRAL. GRAL er skammstöfun á GRindvískir AtvinnuLeikarar.
AĐSTANDENDUR:
Víđir Guđmundsson er ungur leikari, uppalinn í Grindavík, sem hefur slegiđ í
gegn eftir ađ hann útskrifađist frá leiklistardeild Listaháskóla Íslands voriđ
2006. Strax eftir útskrift var hann ráđinn til ađ leika Mozart í metnađarfullri
leiksýningu Borgarleikhússins á Amadeus eftir Peter Shaffer og undanfariđ ár hefur
hann leikiđ spýtustrákinn Gosa hjá sama leikhúsi. Einnig hefur hann leikiđ í
söngleikjunum Gretti og Jesus Christ Superstar og eftirminnileg er frammistađa
hans í kvikmyndinni Strákarnir okkar eftir Róbert Douglas.
Bergur Ţór Ingólfsson leikstjóri, er líka alinn upp í Grindavík en hann útskrifađist
frá Leiklistarskóla Íslands áriđ 1995. Síđan hefur hann starfađ sem leikari og
leikiđ allmörg hlutverk bćđi hjá Ţjóđleikhúsinu og Borgarleikhúsinu. Međ eftirminnilegri
hlutverkum Bergs eru: Haukur í Grandavegi 7, Gvendur í Sjálfstćđu fólki, Litli
Kláus í Litli Kláus og Stóri Kláus, Sansjó Pansa í Don Kíkóti, Marta Smart í
Chicago, Heródes í Jesus Christ Superstar, Úlfar í Dauđasyndunum og Hitler í Mein
Kampf auk ţess ađ leika burđarhlutverk í sjónvarpsţáttunum Stelpurnar og Venni
Páer. Bergur hefur einnig leikstýrt vel á annan tug leikverka og hlotiđ fyrir
ţađ verđlaun bćđi innan- og utanlands.
Guđmundur Brynjólfsson er fćddur 1964 og uppalinn á Vatnsleysuströndinni. Hann
er međ BA próf í bókmenntafrćđi og MA próf í leiklistarfrćđum og auk ţess menntađur
djákni. Guđmundur hefur starfađ viđ leikstjórn, kennslu, kirkjuvörslu, leiđsögn,
frćđimennsku og skriftir svo fátt eitt sé nefnt. Eftir hann hefur birst smásaga
í Lesbók Morgunblađsins, nokkur ljóđ hér og ţar og nokkrar frćđigreinar. Smásaga
hans At? sigrađi í samkeppni Forlagsins um draugasögur fyrir börn og kemur út
nú á haustdögum 2008. Ţá hlaut leikrit hans Net 2. verđlaun í samkeppni um sakamálaleikrit
í Borgarleikhúsinu 2006.
Leikmynda- og búningahönnuđur: Eva Vala Guđjónsdóttir.
Framkvćmdastjórn: Sólveig Guđmundsdóttir.
Handritsgerđ: Bergur Ţór Ingólfsson
Víđir Guđmundsson
Guđmundur Brynjólfsson.
GRAL MANIFESTO:
? Meginmarkmiđ félagsins er ađ taka ţátt í ţjóđfélagsumrćđum, hafa áhrif á listalíf
í landinu og álykta í hinum ýmsu málum á opinberum vettvangi ásamt ţví ađ gera
grindvískum ungmennum auđveldara ađ feta veg listarinnar.
? Eitt af háleitum markmiđum félagsins er ađ fjölga til muna í félaginu á komandi
árum og skal grindvísk menning vega jafnhátt og sjávarútgerđ í Grindavík innan
tveggja áratuga - allavega í huga almennings í landinu. Fjölgunin mun ţó frekar
miđast viđ gćđi en magn ţótt stundum megi magn teljast gćđi.
? Til ţess ađ ná markmiđum sínum hyggjast félagsmenn nú stofna FYRSTA ATVINNULEIKHÚSIĐ
Í GRINDAVÍK og skal ţađ bera sama nafn og félagiđ: GRAL (eđa GRINDVÍSKA ATVINNULEIKHÚSIĐ).
MARKMIĐ:
1. GRAL skal setja upp leiksýningar í Grindavík sem standast ţćr bestu gćđakröfur
sem gerđar eru til atvinnuleikhúss í landinu.
2. GRAL skilgreinir sig sem grindvískt menningarfélag og skal ţessvegna leitast
viđ ađ efla grindvíska menningu međ ýmsum hćtti.
3. GRAL skal tileggja áherslu á ađ setja upp leiksýningar sem tengjast grindvískri
sögu og/eđa menningu.
4. GRAL skal setja a.m.k. upp eina leiksýningu á ári nćstu fjögur árin og fleiri
ef efni standa til.
5. GRAL skal leitast viđ ađ ráđa til starfa grindvíska listamenn sem og tćknifólk.
6. GRAL skal hvetja grindvíska listamenn til dáđa.
7. GRAL skal efla og kynna grindvíska menningu á lands- og jafnvel heimsvísu
eins djarflega og ađstćđur leyfa.
8. GRAL skal miđla ţekkingu sinni til áhugaleikhúss í bćjarfélaginu eins og kostur
er.
9. Til ţess ađ framangreind atriđi nái fram ađ ganga verđur ađ taka tillit til
ţess ađ Grindavík er hluti af Íslandi, sem er síđan hluti af umheiminum og til
ţess ađ einangrast ekki er félaginu leyfilegt ađ fá til sín utanađkomandi ţekkingu
ef ţurfa ţykir og skulu ferskir menningarvindar allstađar ađ fá ađ blása óáreittir
um starfsemi félagsins. GRAL er ţví hvorki átthagafélag né ţjóđernishreyfing.
10. GRAL mun leytast viđ ađ fá gestasýningar frá öđrum atvinnuleikhúsum til bćjarins
til ađ stuđla ađ fjölbreytni í menningarflórunni.
11. Ţótt leikhús sé ekki steinsteypa stefnir GRAL ađ ţví ađ vera komiđ međ fast
húsnćđi fyrir haustiđ 2012.