Af Stað á Reykjanesið - Alfaraleið

  • Fréttir
  • 14. maí 2008

 

AF STAÐ á Reykjanesið:  3. ferð, laugardaginn 17. maí, kl. 11, Alfaraleið,  Hvassahraun ? Straumur. 7 km

 

Upphafsstaður: Akið Reykjanesbraut að skilti þar sem á stendur Hvassahraun, þar er ekin slaufa undir veginn að bílastæði og áningarborði rétt hjá. 

 

Alfaraleið er gömul þjóðleið milli Voga og Hafnarfjarðar. Genginn verður hluti af leiðinni frá Hvassahrauni að Straumi. Svæðið býr yfir minjum og sögum sem leiðsögumenn munu miðla á leiðinni. Áætlað er að gangan taki  ca. 3-4 klst. með fræðslustoppum. Auðveld leið en gott er að vera með nesti og í góðum skóm. Allir á eigin ábyrgð. Akstur til baka kr. 500. Frítt fyrir börn.

 

Gangan er þriðja ferð af fimm menningar- og sögutengdum gönguferðum um hluta af gömlu þjóðleiðunum á Reykjanesskaganum sem farnar verða í maí ´08. Boðið er upp á þátttökuseðil þar sem göngufólk safnar stimplum fyrir hverja ferð. Þegar búið verður að fara 3 - 5 gönguleiðir verður dregið úr seðlum og einhverjir þrír heppnir fá útivistarvörur frá Cintamani. Dregið verður eftir síðustu gönguna. Þátttakendur eru beðnir um að muna efti að taka þátttökuseðla með í ferðir.

Gönguferðin er í boði Menningarráðs Suðurnesja og sjf menningarmiðlunar.

 

                                  Nánari upplýsingar um ferðir:    

www.sjfmenningarmidlun.is

sjf@internet.is/gsm. 6918828

 


Deildu þessari frétt

AÐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bæjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum að heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleðina með!

Fréttir / 2. apríl 2024

Aðstoð við fjármál

Fréttir / 27. mars 2024

Loftgæði og mengun