AF stað á Reykjanesið

  • Fréttir
  • 1. maí 2008

AF STAÐ á Reykjanesið

 

Fimm gönguferðir í maí

 

 

Síðastliðin tvö sumur hefur verið boðið upp á gönguverkefnið AF STAÐ á Reykjanesið -  gönguferðir með leiðsögn um gömlu þjóðleiðirnar á  Reykjanesskaganum. Ferðirnar hafa verið vel sóttar og áhugi fólks mikill á að kynnast náttúru og sögu Reykjanesskagans.

Í maí verður boðið upp á fimm menningar- og sögutengdar gönguferðir um hluta af gömlu þjóðleiðunum  í upplandi Hafnarfjarðar. Ferðirnar verða á laugardögum frá 3.- 31. maí og byrja kl. 11.

 

 

 

Ferðir  dagsetn.  þjóðleið     upphafsstaður ? áfangastaður    km

 

 

 

1. ferð:  3. maí, Selvogsgata. Bláfjallaleið/slysavarnarskýli ? Kaldársel.  7 km

 

Upphafsstaður:  Akið Krýsuvíkurleið frá Hafnarfirði þar til komið er að skilti sem á stendur Bláfjöll, beygið þar til vinstri og akið í um 10 mín. til móts við slysavarnarskýli sem er ofar, hægra megin við veginn.

 

 

 

2. ferð: 10. maí, Ketilsstígur. Djúpavatnsleið ? Krýsuvík, Sveinshús. 7 km

 

Upphafsstaður: Akið Krýsuvíkurleið frá Hafnarfirði að skilti þar sem á stendur Djúpavatn, beygið þar til hægri og akið að gulum stikum merktar Ketilstíg.

 

 

 

3. ferð:  17. maí, Alfaraleið. Hvassahraun ? Straumur. 7 km

 

Upphafsstaður: Akið Reykjanesbraut að skilti þar sem á stendur Hvassahraun, þar er ekin slaufa undir veginn að bílastæði og áningarborði rétt hjá. 

 

 

 

4. ferð:  24. maí, Stórhöfðastígur. Djúpavatnsv./Undirhlíðav. ? Hvaleyrav. skátask. 9 km

 

Upphafsstaður:  Akið Krýsuvíkurleið frá Hafnarfirði þar til komið er að skilti sem á stendur Djúpavatn.

 

 

 

 

5. ferð:  31. maí, Selvogsgata. Kaldársel ? Hafnarfjörður, Strandberg/Hafnarborg. 9 km

 

Upphafsstaður: Akið frá kirkjugarðinum í Hafnarfirði eftir skiltum í átt að  Kaldárseli.

 

 

 

Leiðsögumenn verða með í för og miðla menningar- og sögutengdum fróðleik. Göngurnar  taka 3 ? 4 tíma með fræðslustoppum. Hugmyndin er að göngufólk fái stimpil fyrir hverja ferð á þátttökuseðil. Eftir 3 - 5 gönguferðir er hægt að skila seðlum og vera með í potti sem dregið verður úr eftir síðustu gönguna. Þrír vinningar verða í boði, útivistarvörur frá Cintamani.

                                 Mæting er við upphafsstað göngu. Ekið verður með þátttakendur í rútu til baka. Rútugjald er kr. 500. Frítt fyrir börn. Gönguferðirnar er í boði Hafnarfjarðarbæjar. Ferðamálasamtaka Suðurnesja og sjf menningarmiðlunar.

 Nánari upplýsingar:    

www.sjfmenningarmidlun.is

sjf@internet.is/gsm. 6918828

 


Deildu þessari frétt

AÐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bæjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum að heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleðina með!