Grindavíkurkaupstaður er 40 ára og skólinn vinnur út frá því á þemadögunum sem nú standa yfir. Í Hópsskóla er skipt í hópa og eru nemendur að fást við söguna um Þórkötlu og Járngerði, skúlptúra, leiklist þar sem tekin eru fyrir 4 lög er tengjast Grindavík og túlkuð, „grendargrall" ratleikur, bakstur, listamenn og fyrri og seinnipartar með eldri borgurum.
Þemadagar standa yfir þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag. Á fimmtudeginum mæta nemendur kl. 10, opið hús verður á milli kl. 11-13. Forsetahjónin koma í heimsókn, Pollapönk mætir á svæðið og verkefni nemenda verða til sýnis. Allir velkomnir.