Starfsfólk Grindavíkurbćjar fór á kostum

  • Fréttir
  • 31. mars 2014

Árshátíð Grindavíkurbæjar var haldin með pompi og pragt í Lava-sal Bláa Lónsins á laugardagskvöldið. Met þátttaka var á árshátíðinni eða um 270 manns. Þema kvöldsins var sótt í vinsælustu kvikmynd Íslandssögunnar, söngva og gleðimyndina Með allt á hreinu þar sem Stuðmenn og Grýlurnar fóru á kostum. Veislustjóri árshátíðarinnar var Stuðmaðurinn Valgeir Guðjónsson og þá sýndu nemendur úr Verzló atriði úr söngleiknum sínum Með allt á hreinu.

Hápunktur kvöldsins var svo söngva- og hæfileikakeppni stofnana Grindavíkurbæjar. Þar buðu stofnanir bæjarins upp á hvert frábæra atriðið á fætur öðru. Sigurgöngu leikskólans Lautar lauk að þessu sinni því sameiginlegt lið bæjarskrifstofunnar/bóksasafns/fræðsluskrifstofu bar sigur úr bítum að þessu sinni eftir atkvæðagreiðslu dómnefnda skipuðum frá hverri stofnun. Laut fékk verðlaun fyrir skemmtilegasta atriðið. Það var svo Rokkabillíbandið og Matti Matt sem léku fyrir dans á frábærri árshátíð sem var í umsjá Hópsskóla að þessu sinni. Á næsta ári mun tónlistarskólinn sjá um árshátíðina.

Efsta mynd: Bæjarskrifstofurnar/bókasafn/skólaskrifstofa, sigurvegarar Með allt á hreinu 2014. Þau tóku lagið Hvað er að ske, sem einnig er stundum nefnd Valur og jarðaberjamaukið, sem flutt var með Grýlunum á sínum tíma.

Myndirnar tók Guðfinna Magnúsdóttir af fjörinu. 

Skemmtinefndin gaf tóninn með glæsilegri frammistöðu, sungu lagið Franskar sósa og salat í tilheyrandi búningum; María Eir, Ásrún, Þorsteinn og Kristín.

Nemendur úr Verzló sýndu atriði úr söngleiknum Með allt á hreinu.

Afmælissöngurinn var sunginn fyrir Snorra Kristinsson (fyrir miðju) en hann fagnaði fimmtugsafmæli sínu á árshátíðinni. Með honum á myndinni eru Róbert Ragnarsson bæjarstjóri og Valgeir Guðjónsson veislustjóri.

Miðgarður/Sambýlið buðu upp á stórbrotið búktalsatriði.

Bæjarstjórnin tók þátt í söngvakeppninni og stóð þétt saman!

Einn af hápunktum kvöldsins var astraltertudansinn.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!

Fréttir / 2. apríl 2024

Ađstođ viđ fjármál