Eins og lesa má um hér hefur verið gerð breyting á búsetuþjónustu í Grindavík sem miðar að því að auka lífsgæði fullorðins fólks. Hjónin Kolbrún Þórunn Guðmundsdóttir (63 ára) og Jósep Kristján Guðmundsson (67 ára) búa á Höskuldarvöllum í eigin húsnæði. Kristján vinnur fulla vinnu og er töluvert að heiman en hann keyrir bíla- flutningabíl landshorna á milli. Kolbrún er því mikið ein heima en vegna veikinda á hún á erfitt með gang og gengur við stafi eða göngugrind og hefur verið frá vinnu síðan 2006.
„Kolbrún er í dagvistuninni í Víðhlíð 3 daga vikunnar og tekur þar þátt í tómstunda- og félagsstarfi eins og hún treystir sér til. Bærinn sér um að skutla henni fram og til baka. Þá fáum við þrif einu sinni í viku, sem hjálpar mjög og léttir undir með okkur. Þrifþjónustan var tekin af um stund eftir hrun sem var afleitt og það er okkur mikill léttir að hún sé aftur komin á."
- Hafið þið eitthvað fundið fyrir breytingunum á búsetuþjónustunni?
„Það eru þá helst heimsóknirnar frá starfsmönnum, en þær koma hingað heim fimm til sex sinnum í viku, í klukkutíma til einn og hálfan í senn. Það er alveg stórkostlegt að fá þessar heimsóknir og allar stúlkurnar sem sinna þessari þjónustu eru mjög jákvæðar og þjónustan er mjög persónuleg. Við höfum ekki nýtt okkur neina aðdrætti ennþá, en heimsóknirnar eru mjög mikilvægar, bæði sem öryggisnet sökum veikinda Kolrúnar en svo má ekki gleyma að þetta er einnig ómetanlegur félagsskapur, sérstaklega þar sem ég er svona mikið að heiman" segir Kristján.
- Eru einhver atriði sem ykkur finnst að mætti betur fara í þjónustunni?
„Nei það er í raun yfir engu að kvarta og við erum í raun afar þakklát fyrir þjónustuna. Þessar heimsóknir eru alveg frábærar en Sirrý lét okkur einmitt hafa mjög nákvæmt plan yfir þær fram í tímann sem er gott að hafa við höndina. Við höfum ekkert nema gott um þjónustuna að segja, sérstaklega eftir þessar breytingar á henni. Það er náttúrulega enn lítil reynsla komin á þetta nýja fyrirkomulag en það er ekki ólíklegt að við munum nýta okkur fleiri valkosti eftir því sem meiri reynsla kemur á þetta. En svona þar fyrir utan þá höfum við horft svolítið til þess að komast að í Víðihlíð, en fjöldi plássa þar er takmarkaður og Kolbrún er ekki orðin nógu gömul til að komast þar að þrátt fyrir að vera heilsulítil. Ég aftur á móti er að komast á aldur en lendi aft-arlega á biðlista þar sem að ég er enn sæmilegur til heilsunnar. Ég held að það yrði mikil bót í máli ef bærinn myndi stækka Víðihlíð og stytta þannig biðlistana" segir Kristján að lokum.