Í dag föstudag kl. 18:00 (ekki 20:00 eins og áður var auglýst) verður upphitun á Sjómannastofunni Vör undir yfirskriftinni: Franskar sósa og salat. Eitt frægasta atriði vinsælustu kvikmyndar Íslandssögunnar, MEÐ ALLT Á HREINU, var tekið þar upp á sínum tíma. Í tilefni af árshátíð Grindavíkurbæjar verður myndin sýnd á Vör til að hita upp fyrir árshátíðina en allir bæjarbúar eru velkomnir. Sýning myndarinnar hefst kl. 18:30.
Tilboð: Hamborgari, franskar sósa og salat á 1.000 kr.
Eða eins og segir í myndinni með Allt á hreinu:
„Í kvöld er það sko ekkert bitið aftan hægra eða stýft aftan vinstra."