Þrátt fyrir kuldaveður mættu Grindvíkingar vel í tvær göngur um síðustu helgi. Annars vegar var gengið um gamla hverfið í Grindavík og hins vegar um Arnarhraun. Þá verður þriðja gangan næsta sunnudag.
Sigurður Ágústssonar fyrrverandi yfirlögregluþjónn gekk um húsin í gamla hverfinu í Grindavík þar sem hann stiklaði á stóru í sögu húsanna. Sigurður hefur unnið samantekt um sögu þeirra og er því hafsjór af fróðleik.
Þá var Rannveig L. Garðarsdóttir með gönguferð um Arnarseturshraun. Gengið var yfir Grindavíkurveg að fallegum hleðslum sem þjónuðu vegavinnumönnum við gerð Grindavíkurvegarins á árunum 1913 - 1918. Sagt var frá upphafi og gerð vegarins sem var unninn af hestum og mönnum, aðallega með handaflið að vopni.
Næsta sunnudag kl. 11:00 verður svo Gönguferð um Skipsstíg með með Kristjáni Bjarnasyni umsjónarmanni grænna og opinna svæða. Mæting kl. 11:00 á bílastæði Bláa lónsins. Sameinast verður í bíla og ekið að upphafsstað göngu í Njarðvík. Skipsstígur er forn þjóðleið milli Grindavíkur og Njarðvíkur. Gengið verður hjá Sjónarhól um Rauðamel að Bláa lóninu. Svæðið býr yfir ótrúlegri náttúru. Áætlað er að gangan taki ca. 4 - 5 klst. með stoppum, vegalengd um 12 km. Gott er að vera með nesti og í góðum skóm. Allir eru á eigin ábyrgð. Ekkert þátttökugjald
Gengið um gamla bæinn í fylgd Sigurðar.
Hópurinn sem gekk um Arnarseturshraun fyrir ofan opið á Kubb.
Myndir: Róbert Ragnarsson og Eggert Sólberg Jónsson.