Hér fylgja nokkrar myndir frá viðburðum í Menningarvikunni sem nú stendur sem hæst. Á efstu myndinni er Guðbergur Bergsson rithöfundur og heiðursborgari Grindavíkur ásamt fríðu föruneyti í Kvikunni þar sem hann var í heimsókn.
Tónlistarmennirnir Roger Norén og David Wahlén, frá vinabæ Grindavíkur, Piteå, spiluðu sænsk þjóðlög í hádegismatnum í Lava-salnum í Bláa Lóninu á mánudaginn við góðar undirtektir.
Sýning Minja og sögufélags Grindavíkur er í Kvikunni. Til sýnis eru ýmsir munir úr sögu Grindavíkur sem koma víða að. Tilgangur félagsins er að stuðla í samvinnu við aðra að varðveislu menningarminja í Grindavík.
Hvað á á gera við afa? Þetta var yfirskrift á fróðlegum fyrirlestri Kristínar Einarsdóttur þjóðfræðings um hlátur, húmor og tengsl við samfélagið, sem hún hélt í Kvikunni um helgina.