Söngsveitin Fílharmónía bauð upp á skemmtilega tónleika í Grindavíkurkirkju í Menningarvikunni en þetta er einn allra fremsti kór landsins.
Áhersla var lögð á að flytja efni sem kórinn mun flytja í kórakeppninni „Langollen International Musical Eisteddfod„ í Wales í júlí. Á efnisskránni voru nýleg kórverk íslenskra og erlendra tónskálda í bland við eldri kórverk. Kórinn skipa um 70 manns hverju sinni, frá 18 til 65 ára. Var unun að hlusta á kórinn.