Nýtt Ungmennaráð Grindavíkur hefur tekið til starfa. Það hefur fundað tvisvar og jafnframt fulltrúi þess komið inn á fund frístunda- og menningarnefndar. Jafnframt mun ráðið sitja bæjarstjórnarfund bráðlega. Ungmennaráðið skipa:
Nökkvi Harðarson, Elsa Katrín Eiríksdóttir, Karín Óla Eiríksdóttir, Nökkvi Nökkvason, Katrín Lóa Sigurðardóttir, Þórveig Hulda Frímannsdóttir, Lárus Guðmundsson.
Ungmennaráðið skipaði með sér verkum. Lárus er formaður og Nökkvi varaformaður.
Þrír fulltrúar Ungmennaráðs ætla að fara til Ísafjarðar á landsfund ungmennaráða 10. apríl nk. Þá hafa verið ræddar ýmsar hugmyndir um málefni ungs fólks, eins og t.d. að búa til frístunda- og menningarapp til þess að ná til unga fólksins. Jafnframt um endurskoðun vinnutíma unglinga í vinnuskólanum, vegagirðingar í bænum og ókeypis í sund fyrir krakka ákveðnum dögum til að hvetja þau til þess að mæta og nýta sér sundlaugina betur. Jafnframt var rætt um að opna Þrumuna fyrir 16-18 ára vegna verkefalls kennara o.fl.
Mynd: Lárus Guðmundsson, nýr formaður ungmennaráðs.