Í Menningarvikunni kemur fimm manna sendinefnd frá Piteå, vinabæ okkar Grindvíkinga í Svíþjóð. Meðal annars koma tveir tónlistarmenn sem munu spila m.a. við setningu Menningarvikunnar og í Bláa Lóninu. Þá má geta þess að Piteå sendir einnig fulltrúa sína í 40 ára afmæli bæjarins 10. apríl nk
Fulltrúar Piteå heimsóttu Grindavík í fyrra og buðu 3. flokki stúlkna á árleg knattspyrnumót í fyrrasumar þar sem stelpurnar fengu frábærar móttökur. Fulltrúar bæjarins voru einnig með í þeirri ferð. Hafa því skapast góð tengsl á milli þessara vinabæja.