Sumarstörf hjá Grindavíkurbć

  • Fréttir
  • 11. mars 2014

Grindavíkurbær og Kvikan auglýsa sumarstörf í sundlaug, tjaldsvæði, heimaþjónustu, flokksstjórum við Vinnuskólann, leiðbeinendur við leikjanámskeið og í Kvikuna. Sækja skal um öll þessi störf á heimasíðu bæjarins: www.grindavik.is/umsokn. Umsóknarfrestur er til 25. mars nk. 

Starfsmenn í Kvikuna

Grindavíkurbær og Kvikan, auðlinda- og menningarhús, auglýsa eftir starfsmanni til að starfa í Kvikunni sumarið 2014. Starfstímabil er frá 1. maí til 31. ágúst. Starfið felst í móttöku gesta, upplýsingaveitu, uppgjöri og þrifum. Vinnutími er frá kl. 10:00 - 17:00 alla virka daga. Starfið felst í móttöku gesta, upplýsingaveitu, uppgjöri og þrifum.

Leitað er að einstaklingi 20 ára og eldri sem hefur;
- ríka þjónustulund,
- góða tungumálakunnáttu (enska og eitt Norðurlandamál skilyrði),
- góða skipulagshæfileika, geta unnið sjálfstætt og haft frumkvæði,
- góða hæfni í mannlegum samskiptum 
- mikla ábyrgðartilfinningu og síðast en ekki síst góða þekkingu á staðháttum í Grindavík og nágrenni.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Verkalýðsfélags Grindavíkur.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Róbert Ragnarsson bæjarstjóri og stjórnarformaður Saltfiskseturs Íslands í síma 420 1100, netfang: robert@grindavik.is 
Umsækjendur fylli út rafræna umsókn á heimasíðu Grindavíkurbæjar ( www.grindavik.is/umsokn), í síðasta lagi 25. mars.

Starfsmenn á tjaldsvæði

Grindavíkurbær og og Kvikan, auðlinda- og menningarhús, auglýsa eftir starfsfólki til að starfa á tjaldsvæði 
Grindavíkurbæjar sumarið 2014. Starfstímabil er frá 12. maí til 31. ágúst. Ráðnir verða þrír starfsmenn sem ganga munu vaktir á þessum tveimur starfsstöðum. Á tjaldsvæðinu á virkum dögum og í Kvikunni um helgar. Starfið felst í móttöku gesta, upplýsingaveitu, uppgjöri og þrifum.

Leitað er að einstaklingum helst 18 ára og eldri sem hafa;
- ríka þjónustulund,
- góða tungumálakunnáttu (enska og eitt Norðurlandamál skilyrði),
- góða skipulagshæfileika, geta unnið sjálfstætt og haft frumkvæði,
- góða hæfni í mannlegum samskiptum 
- mikla ábyrgðartilfinningu og síðast en ekki síst góða þekkingu á staðháttum í Grindavík og nágrenni.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Verkalýðsfélags Grindavíkur.

Nánari upplýsingar um störfin veitir Þorsteinn Gunnarsson sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs Grindavíkurbæjar í síma 420 1100, netfang: thorsteinng@grindavik.is 
Umsækjendur fylli út rafræna umsókn á heimasíðu Grinda-víkurbæjar ( www.grindavik.is/umsokn), í síðasta lagi 25. mars n.k.

Starfsfólk í sundlaug

Grindavíkurbær auglýsir eftir sumarafleysingum í sumar í sundlauginni. 
- Kvenmann í 75% starf við gæslu, afgreiðslu og þrif, frá 1. maí til 15. júlí.
- Karlmann í 100% starf frá 15. júní til 31. júlí við gæslu,afgreiðslu og þrif.

Leitað er að einstaklingum 18 ára og eldri sem hafa:
- þekkingu í skyndihjálp og standast kröfur sem gerðar eru til sundvarða sem felast í því að taka sundpróf samkvæmt reglugerð um öryggi á sundstöðum
- hafa góða færni í mannlegum samskiptum
- góða skipulagshæfileika, geta unnið sjálfstætt og haft frumkvæði

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Verkalýðsfélags Grindavíkur.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hermann Guðmundsson forstöðumaður íþróttamannvirkja 426 8451. 
Umsækjendur fylli út rafræna umsókn á heimasíðu Grindavíkurbæjar ( www.grindavik.is/umsokn), í síðasta lagi 25. mars n.k.


Flokksstjórar við Vinnuskóla Grindavíkur

Vinnuskóli Grindavíkur auglýsir eftir flokksstjórum til að starfa við skólann sumarið 2014. Starfstímabil er frá 20. maí til 15. ágúst. Leitað er að einstaklingum 20 ára og eldri sem hafa;
- ríka þjónustulund,
- góða skipulagshæfileika, geta unnið sjálfstætt og tekið frumkvæði,
- góða hæfni í mannlegum samskiptum,
- mikla ábyrgðartilfinningu og síðast en ekki en síst ánægju að því að vinna með og leiðbeina unglingum.

Flokkstjórar stjórna daglegu starfi vinnuflokka skólans og stuðla að reglusemi , ástundun og góðri umgengni starfsmanna.
Flokkstjórar vinna með unglingunum og sýna þeim hvernig staðið skuli að verki og leiðbeina um notkun á áhöldum og tækjum.

VINNUSKÓLI GRINDAVÍKURBÆJAR ER TÓBAKSLAUS VINNUSTAÐUR.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands sveitarfélaga og Verkalýðsfélags Grindavíkur.

Nánari upplýsingar um störfin veitir Þorsteinn Gunnarsson sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs Grindavíkurbæjar í síma 420 1100, netfang: thorsteinng@grindavik.is 
Umsækjendur fylli út rafræna umsókn á heimasíðu 
Grindavíkurbæjar (www.grindavik.is/umsokn), í síðasta lagi 25. mars n.k.

Leiðbeinendur við leikjanámskeið Grindavíkurbæjar

Grindavíkurbær auglýsir hér með eftir leiðbeinendum til að starfa við leikjanámskeið bæjarins sumarið 2014. Starfstímabil er frá 9. júní til 1. ágúst (möguleiki að byrja fyrr). Leitað er að einstaklingum 20 ára og eldri sem hafa;
- ríka þjónustulund,
- góða skipulagshæfileika, geta unnið sjálfstætt og tekið frumkvæði,
- góða hæfni í mannlegum samskiptum og síðast en ekki síst reynslu og ánægju af því að vinna með börnum og unglingum.

Leiðbeinendur hafa umsjón með starfsemi leikjanámskeiðanna í samráði við sviðssstjóra frístunda- og 
menningarsviðs Grindavíkurbæjar. 
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands sveitarfélaga og Verkalýðsfélags Grindavíkur.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Þorsteinn Gunnarsson 
sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs Grindavíkurbæjar í síma 420 1100, netfang: thorsteinng@grindavik.is 
Umsækjendur fylli út rafræna umsókn á heimasíðu Grindavíkurbæjar (www.grindavik.is/umsokn), í síðasta lagi 25. mars n.k.

Starfsfólk í Heimaþjónustu

Heimaþjónustan í Miðgarði auglýsir eftir starfsfólki í vaktavinnu í sumarafleysingar. Starfstímabil er frá 1. júní til 31. ágúst. Starfið felst í almennri umönnun og eftirfylgd skjólstæðinga innan og utan heimilisins, almennum
heimilisverkum, þrifum og ýmsum tilfallandi verkefnum.

Leitað er að einstaklingi 20 ára og eldri sem hefur;
- ríka þjónustulund
- góða skipulagshæfileika, geta unnið sjálfstætt og haft frumkvæði,
- góða hæfni í mannlegum samskiptum
- mikla ábyrgðartilfinningu
- grunnþekkingu í almennri tölvunotkun

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Suðurnesja.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Stefanía Jónsdóttir deildarstjóri í síma 426 8014, netfang: stefania@grindavik.is
Umsækjendur fylli út rafræna umsókn á heimasíðu Grindavíkurbæjar (www.grindavik.is/umsokn), í síðasta lagi
25. mars n.k.

 


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir