Salthúsið og Kvikan standa fyrir Uppskriftakeppni um besta saltfiskréttinn í Grindavík 2014 undir yfirskriftinni Lífið er Saltfiskur, þetta er hluti af dagská Menningarvikunnar. Sérstök dómnefnd undir stjórn Láka á Salthúsinu velur þrjár bestu uppskriftirnar. Höfundar þeirra verða boðaðir á Salthúsið þar sem þeir, eða fulltrúar þeirra, elda saltfiskinn fyrir dómnefndina sem velur að lokum BESTA SALTFISKRÉTTINN eftir smökkunina.
Hægt er að senda uppskriftir í tölvupósti til salthusid@salthusid.is í síðasta lagi 23. mars.
Verðlaun:
Vinningsuppskriftir verða sýnilegar á vefsíðum Salthússins, www.salthusid.is, Grindavíkurbæjar, www.grindavik.is og Kvikunnar, www.grindavik.is/kvikan. Í Menningarviku mun Salthúsið í Grindavík bjóða upp á saltfiskrétti.