Ólafur Björnsson hæstaréttarlögmaður verður milliliðalaust á kaffihúsinu Bryggjunni í fyrramálið
miðvikudaginn 26. febrúar kl. 9-10. Ólafur hefur unnið talsvert að landamerkjamálum á sínum starfsferli. Hann skilaði nýlega minnisblaði til bæjarráðs Grindavíkur um landamerki milli Staðar í Grindavík og Kalmanstjarnar í Höfnum. Hann mun fjalla um þetta minnisblað á bryggjunni og svara spurningum gesta.