SUSHI matreiðslunámskeið með Erni Garðars frá Soho Catering verður í eldhúsi grunnskólans við Ásabraut miðvikudaginn 19. mars í Menningarvikunni. Björk Sverrisdóttir matreiðslukennari grunnskólans verður til aðstoðar. Farið verður yfir grunnþætti í sushi gerð og matreiða nemendur sjálfir og fara heim með afraksturinn.
20 manns komast á námskeiðið. Fyrstir koma - fyrstir fá. Námskeiðið hefst kl. 18 og er í um 3 tíma. Skráning á bjorksv@hive.is (sendið nafn og kennitölu). Verð: 5000 kr.