Forsala á bikarúrslitaleikinn

  • Fréttir
  • 15. febrúar 2014

Miðasala á bikarúrslitaleik Grindavíkur og Stjörnunnar í körfubolta karla sem fram fer í Laugardalshöllinni laugardaginn 22. febrúar nk. mun fara fram fyrir leikinn. Forsalan hefst mánudaginn 17. febrúar og mun hún Ása selja miðana á Glæsivöllum 9 og verður hægt að kaupa miða frá kl 19:00-22:00 alla dagana sem til eru miðar en aðeins eru seldir 250 miðar í forsölu. 

Miðaverðið er 1500.- í forsölu en 2000.- kr á leikdegi í höllinni. Einnig er hægt að kaupa miða á www.midi.is

Við viljum einnig minna þá á sem hafa áhuga á að fylgjast með körfuknattleiksdeildinni á síðuna þeirra á Facebook


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!

Fréttir / 2. apríl 2024

Ađstođ viđ fjármál