Dagbjartur Willardsson bæjarfulltrúi og stórsöngvari heldur upp á fimmtugsafmæil sitt 14. febrúar nk. með tónleikum í Grindavíkurkirkju þar sem hann mun taka bæði gömul og góð íslensk og erlend lög frá síðustu áratugum. Einvala lið tónlistarmanna mun spila undir á tónleikunum.
Lögin sem flutt verða koma úr ýmsum áttum og meðal þeirra sem fluttu lögin upprunalega eru td: Villi Vill, Haukur Morthens, Björgvin Halldórsson, Mannakorn, Sálin, U2, Nirvana, Billy Joel ofl.
Aðgangseyrir: 1.500 kr en frítt er fyrir börn 12 ára og yngri í fylgd fullorðinna. Allur hagnaður sem verða kann á tónleikunum rennur í líknarsjóð Grindavíkurkirkju. Hægt er að kaupa miða í forsölu á skrifstofu VÍS.
Vonast eftir að sjá sem flesta og fagna hálfrar aldar afmælinu með kallinum.