Tilkynning til fasteignaeigenda um álagningu ársins 2014: Álagningarseðlar fyrir árið 2014 verða eingöngu birtir rafrænt og ekki sendir út í bréfapósti. Fasteignaeigendur geta nálgast álagningarseðilinn á island.is með því að skrá sig inn, annaðhvort með rafrænum skilríkjum eða Íslykli.
Grindavíkurbær mun þó senda einstaklingum 67 ára og eldri og fyrirtækjum álagningarseðil í bréfapósti.
Gjalddagar og greiðsla fasteignagjalda:
Gjalddagar fasteignagjalda eru tíu. Fyrsti gjalddagi er 1. febrúar 2014 og sá síðasti 1. nóvember 2014. Eindagi fasteignagjalda er þrjátíu dögum eftir gjalddaga og falla öll gjöld ársins í gjalddaga ef vanskil verða. Reynist heildarálagning gjalda 20.000 kr. eða lægri fer öll fjárhæðin á gjalddaga 1. febrúar 2014.
Greiðsluseðlar vegna fasteignagjalda eru sendir út rafrænt og birtast í heimabönkum gjaldenda. Einstaklingar 67 ára og eldri og fyrirtæki fá greiðsluseðla senda í pósti. Aðrir geta fengið greiðsluseðil í pósti en þeir verða að óska eftir því sérstaklega og er bent á netfangið gudbjorg@grindavik.is
Greiðslustöðu gjalda er hægt að skoða með hnappnum „Bæjardyr" sem er á heimasíðu Grindavíkurbæjar.