Nefnd skipuđ um búsetumál eldri borgara

  • Fréttir
  • 13. febrúar 2014

Bæjarráð hefur skipað fimm manna nefnd til að fara yfir búsetumál eldri borgara í Grindavík. Skal nefndin afla gagna til að meta þörf fyrir íbúðir og þjónustu fyrir eldri borgara í bænum til næstu 10 ára, með hliðsjón af íbúaþróun.
Nefndin skal framkvæma könnun meðal eldri borgara um búsetuóskir þeirra. Nefndin skal skila bæjarstjórn þarfagreiningu og tillögum eigi síðar en 15. apríl 2014. Starfsmaður nefndarinnar er sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs.

Nefndin skipa:

  • f.h. félagsmálanefndar: Anna Sigríður Jónsdóttir
  • f.h. félags eldri borgara í Grindavík: Sverrir Vilbergsson
  • f.h. Miðgarðs: Stefanía Sigríður Jónsdóttir
  • f.h. minnihluta bæjarstjórnar Hjálmar Hallgrímsson
  • f.h. meirihluta bæjarstjórnar Bryndís Gunnlaugsdóttir Holm


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir