Eldstöðvar á Íslandi hefur á undanförnum vikum verið viðfangsefni nemenda í 4. Þ. Var skipt í hópa og fékk hver hópur það verkefni að finna fróðleik um eina eldstöð og vinna myndrænt í samvinnu við myndmenntakennarann. Meðal eldstöðva sem nemendur lásu um voru Hekla, Katla, Surtsey, Grímsvötn, Eyjafjallajökull.
Hugmyndin kom í upphafi frá nemendum sjálfum en þeir voru mjög spenntir fyrir því að læra um eldgos. Þuríður Gísladóttir kennari greip áhugann á lofti og nú fer þemaverkefninu að ljúka og verður lokahnykkurinn settur á þegar börnin bjóða foreldrum og forráðamönnum að líta við á föstudagsmorguninn kl. 10. Þá verður verkefnið kynnt og boðið upp á hressingu.