Fimm keppendur frá Grindavík tóku þátt í Afmælismóti Júdósambands Íslands síðastliðinn sunnudag. Þeir Aron Snær Arnarsson, Björn Lúkas Haraldsson, Guðjón Sveinsson, Haraldur Mariuson og Helgi Heiðarr Sigurðsson voru meðal keppenda yngri flokka og kræktu sér þar tvö bronsverðlaun, tvö silfur og ein gullverðlaun.
Haraldur keppti í -38 kg flokki U13 ára. Þar voru 6 keppendur og skipt var í tvo þriggja manna riðla. Hann vann sinn riðil örugglega og vann í framhaldi af því undanúrslitaglímuna eftir mikla baráttu en tapaði svo úrslitaglímunni og endaði því í 2. sæti.
Helgi Heiðarr keppti í -50 kg flokki U13 ára og átti fyrstu fyrstu glímu mótsins og jafnframt þá lengstu en hún stóð í4:26 mínútur, en venjuleg glíma er 2 mínútur. Hann tapaði þó þeirri glímu á gullskori. Tapaði hann einnig seinni glímunni eftir harða rimmu. Þrír keppendur voru í flokknum og hlaut hann því bronsverðlaun. Þess má geta að Haraldur og Helgi voru báðir að keppa á sínu fyrsta júdómóti.
Aron Snær keppti í -66 kg flokki U15 ára. Þar voru 3 keppendur. Hann vann aðra glímuna sína en tapaði hinni eftir erfiða glímu og hlaut hann því silfur.
Guðjón keppti í -73kg flokki U21 árs. Þar voru 5 keppendur. Hann vann fyrstu glímuna örugglega en tapaði þeirri seinni og endaði í þriðja sæti.
Björn Lúkas keppti í -81 kg flokki U21 árs. Þar voru 4 keppendur. Björn Lúkas tapaði fyrstu glímunni sinni en vann tvær í kjölfarið af öryggi. Innbyrðis viðureignir fóru svo að hann vann gullverðlaun í þeim flokki.
Efsta mynd: Björn Lúkas annar frá vinstri.
Haraldur lengst til vinstri
Helgi lengst til hægri