Risa pottur í Gula húsinu

  • Fréttir
  • 31. janúar 2014

Ekki fengust 13 réttir síðast, kerfið skilaði 12 réttum sem gáfu heilar 1200 kr. í vinning eða 12 krónum á hlut. En þar sem 10 og 11 duttu út verður enn einn risapottur og enn einu sinni verður reynt að ná þrettán í Gula húsið.

Um þar næstu helgi (8. feb) byrjum svo með Hópleik þar sem fyrsti vinningur verður væntanlega ferð fyrir 2 á leik í enska boltanum, en það verður auglýst betur eftir helgi.

Við erum byrjaðir að selja í stóra seðilinn fyrir næsta laugardags. Potturinn fyrir 13 rétta verður um 250 milljónir. Sama regla og síðast, sölu líkur 12:30 á laugardeginum - seljum hluti þangað til!


Þeir sem eiga inneign og ætla að nota e-ð af henni til að kaupa hlut verða að melda sig inn hjá Bjarka á email bjarki@thorfish.is. Þeir sem eru að koma nýjir inn þurfa að leggja inn fyrir þeim hlutum sem þeir ætla að kaupa. Þið þurfið að leggja inná reikning 0143-05-060020, kt: 640294-2219 og senda staðfestingu á bjarki@thorfish.is.

Þetta er síðasti stóri seðill í bili en ef potturinn fer yfir 200 millurnar eða í kringum það þá látum við vaða aftur! Getið byrjað að melda ykkur inn........


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir