Frístunda- og menningarnefnd Grindavíkurbæjar auglýsir eftir ábendingum um Bæjarlistamann Grindavíkur 2014. Útnefningin verður tilkynnt í tengslum við Menningarhátíð Grindavíkurbæjar 15.-22. mars nk. Ábendingar þurfa að hafa borist frístunda- og menningarnefnd í síðasta lagi 1. febrúar 2014 á netfangið heimasidan@grindavik.is.
Nefndin óskar hér með eftir tilnefningum eða ábendingum frá Grindvíkingum um einstakling eða samtök listamanna í Grindavík, eða tengjast Grindavík á einn eða annan hátt, sem til greina koma að bera sæmdarheitið bæjarlistamaður ársins 2014.
Frístunda- og menningarnefnd Grindavíkur útnefnir annað hvert ár Bæjarlistamann Grindavíkur og annað hvert ár Menningarverðlaun Grindavíkur, samkvæmt nýsamþykktri Menningarstefnu Grindavíkur.
Eftirtaldir hafa fengið Menningarverðlaun Grindavíkur undanfarin ár:
2013 Einar Lárusson
2012 Þorbjörn hf.
2011 Bryggjubræður, Aðalgeir og Kristinn Jóhannssynir
2010 Ómar Smári Ármannsson og Saltfisksetrið