Bæjarmálafundur Lista Grindvíkinga verður í kvöld kl. 21:00 á Bryggjunni. Á dagskrá er efni bæjarstjórnarfundar sem verður á morgun þriðjudaginn 28. janúar. Þá hvetjum við alla áhugasama íbúa sem vilja taka þátt í undirbúningi komandi sveitarstjórnarkosninga, að líta við og fá sér kaffisopa og spjalla við bæjarfulltrúa, nefndarmenn og annað G-listafólk.
Hlökkum til að sjá ykkur!