Þjálfarar stjörnuliðanna, þeir Andy Johnston og Ingi Þór Steinþórsson hafa valið sín Stjörnulið í körfubolta kvenna sem mætast í Schenkerhöllinni að Ásvöllum í Hafnarfirði næstkomandi laugardag kl. 13.00. Tveir leikmenn Grindavíkur eru í liðinu, þær Ingibjörg Jakobsdóttir og María Ben Erlingsdóttir.