Mokveiđi í Grindavíkurhöfn

  • Fréttir
  • 22. janúar 2014

Þessa dagana er mokveiði í Grindavíkurhöfn. Fólk er að fá þar fallegan þorsk, góðan ufsa og kola í miklum mæli á stöng. Gunnar Sigurðsson, fyrrum skipstjóri, fékk tvo fallega þriggja kílóa þorska á stöngina á sunnudaginn á aðeins hálftíma. „Þetta er fínasti fiskur, alveg laus við orm og virkilega fínn í soðið," segir Gunnar í samtali við kvotinn.is

Gunnar var með línukrók og beitti síld, enda ekki að eltast við ufsann, en annars eru menn að fá upp í átta kílóa ufsa á stöngina. Hann segir að mjög óvenjulegt sé að svona mikið af góðum þorski sé í höfninni, en hann sé líklega að elta síld inn í höfnina. Þetta hafi ábyggilega ekki gerst áður, en nú sé búið að breyta innsiglingunni og eftir það eigi fiskurinn greiðari leið þar inn.

„Á sunnudaginn voru þetta mest Pólverjar við veiðarnar. Þeir eru vel búnir til veiðanna og taka mest ufsa og kola. Í gær voru svo meira gamlir Grindvíkingar við veiðarnar og mikið af fólki að fylgjast með. Það veiðist best við hafnarkjaftinn á aðfallinu, en kola fá menn við Viðlagasjóðsbryggjuna," segir Gunnar.

Hann var vanur að reyna fyrir sér á stöngina í gamladaga, meðal annars þegar hann var á Háberginu. Þá renndu þeir fyrir fisk í höfnunum í Siglufirði og Seyðisfirði og fengu töluvert af þorski sem þá var látinn síga. Fátt er betra en sjósiginn fiskur segir eldra fólkið. En þorskveiðin í Grindavíkurhöfn er skemmtileg nýlunda að mati Gunnars.
Á myndinni er Gunnar með fallegan þorsk en ljósmyndari er Eyjólfur Vilbergsson.

kvotinn.is


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 10. apríl 2024

NIE ZAPOMINAJMY O OKAZJACH DO RADOSCI

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir

Fréttir / 3. apríl 2024

Höfum gleđina međ!