Nökkvi Már Jónsson sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og Jón Þórisson sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs mættu á fund bæjarráðs og fóru yfir tillögu um afslátt á milli dagforeldraþjónustu, leikskóla og skólasels og fyrirkomulagi til að halda utanum afslættina.
Afsláttur vegna annars barns verður 35%.
Afsláttur vegna þriðja barns verður 70%.
Afsláttur vegna fjórða barns verður 100%.
Afsláttur er veittur af lægsta gjaldi.
Lagt er til að koma upp rafrænni skráningu umsókna í gegnum Íbúagátt í One kerfinu. Það býður auk þess upp á fleiri möguleika í rafrænni stjórnsýslu.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og leggur til við bæjarstjórn að samþykktur verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2014 upp á 1.400.000 kr. sem komi til lækkunar á handbæru fé.
Áætlað er að nýtt kerfi taki gildi 1. mars næstkomandi.