Bæklingi um undirbúning 40 ára kaupstaðarafmæli Grindavíkurbæjar verður dreift í öll hús á morgun, föstudag. Bæklinginn má lesa hér. Þar er einnig að finna upplýsingar um tilnefningar til bæjarlistamanns o.fl. Íbúafundur verður á mánudaginn í Hópsskóla kl. 18:00 í tilefni afmælisins. Þar verður farið verður yfir helstu viðburði bæjarins á afmælisárinu. Bæjarbúar eru hvattir til þess að mæta og taka þátt í umræðum og leggja fram sínar hugmyndir.
Hvar og hvenær: Mánudaginn 20. janúar kl. 18:00 í Hópsskóla.
Dagskrá:
1. Kynning á menningarstefnu Grindavíkurbæjar. Hægt er að kynna sér hana nánar hér.
2. Menningarvikan 15.-22. mars.
3. 40 ára kaupastaðarafmæli Grindavíkurbæjar.
4. Sjóarinn síkáti.
5. Hugmyndabankar opnir.
40 ára afmælisnefnd Grindavíkurbæjar.