Ásýndin við Suðurgarð og nágrenni mun breytast ansi mikið en nú er verið að rífa gömlu lýsistankana sem hafa staðið ónotaðir eftir brunann mikla í fiskifjölsverksmiðjunni á þessu svæði fyrir um áratug síðan. Búið er að rífa tvo tanka af fjórum og mun verkinu ljúka í næstu viku.
Hauktak á lóðina og er fyrirhuguð uppbyging á þessu atvinnusvæði við höfnina sem taka mun miklum breytingum eftir þetta, ekki síður eftir að landfyllingu við Suðurgarð lýkur. Eru spennandi tímar framundan á þessu svæði.