Bæjarráð hefur samþykkt tillögu frístunda- og menningarnefndar um að styrkja Karlakór Grindavíkur til þess að efla starfsemi kórsins sem stofnaður var í fyrra. Karlakórinn fær 200.000 kr. hvort samningsár og jafnframt leggur Grindavíkurbær kórnum til æfingahúsnæði í útistofu Tónlistarskóla Grindavíkur.
Innifalið í samningnum er að ár hvert skal Karlakór Grindavíkur vera með tónleika og koma fram á viðburðum í bæjarfélaginu.
Á myndinni eru Róbert Ragnarsson bæjarstjóri og Ólafur Þór Þorgeirsson kátir eftir undirritun samningsins.