Bókakonfekt međ Guđna og Árna

  • Fréttir
  • 17. desember 2013

Bókakonfekt bókasafnsins verður á kaffihúsinu Bryggjunni á morgun miðvikudaginn 18. desember kl. 21:00. Rithöfundarnir Árni Þórarinsson og Guðni Ágústsson lesa úr verkum sínum. 

„Nýja bókin hans Árna er öðruvísi en þær fyrri. Sá sem þetta skrifar er búinn að lesa bókina. Hún er svo myndræn og stórkostlega átakanleg og mjög trúverðug. Þetta er uppskrift að toppbíómynd. Ég hef lesið allar bækurnar sem Árni hefur gefið út og fullyrði að þessi er sú bezta án þess að slá rýrð á hinar fyrri.

Guðni Ágústsson er betur þekktur sem stjórnmálamaður og frábær ræðumaður. Allt hefur sinn tíma, nú er Guðni að slá í gegn sem rithöfundur. Bókakonfektið er samvinna bókasafns Grindavíkur og Bryggjunnar.Það eru allir velkomnir meðan húsrúm leyfir!" segir í tilkynningu frá Bryggjunni.


Deildu ţessari frétt

AĐRAR FRÉTTIR

Fréttir / 9. apríl 2024

Pistill bćjarstjórnar 9. apríl

Fréttir / 5. apríl 2024

Zimna woda w Grindavík

Fréttir / 3. apríl 2024

Hlúum ađ heilsunni. Ókeypis kostir