Heimasíðan stendur fyrir vali á Grindvíkingi ársins 2013. Grindvíkingar eru hvattir til þess að senda tilnefningar á heimasidan@grindavik.is. Vinsamlegst sendið jafnframt með rökstuðning fyrir því af hverju viðkomandi ætti að vera valinn Grindvíkingur ársins.
Valið er fyrst og fremst gert til þess að vekja athygli á því sem vel er gert í Grindavík. Valið verður kunngjört á þrettándagleðinni en hægt er að senda tilnefningar til 3. janúar. Fimm manna dómnefnd mun fara yfir tilnefningarnar og velja Grindvíking ársins með tilliti til þeirra. Verðlaunin verða svo afhent á þrettándagleðinni.
Grindvíkingur ársins:
2009 Davíð Arthur Friðriksson og Sigurður Halldórsson
2010 Ásta Birna Ólafsdóttir.
2011 Matthías Grindvík Guðmundsson.
2012 Útsvarslið Grindavíkur; Agnar Steinarsson, Daníel Pálmason og Margrét Pálsdóttir.
Mynd: Útsvarslið Grindavíkur, Grindvíkur ársins 2012.