Grindavíkurbær og Skógræktarfélag Grindavíkur hafa skrifað undir samstarfssamning um skógræktarsvæðið Selskóg við Þorbjörn og uppgræðslu á landi norður af Hópshverfi, Hópsheiði og yfir á Klifhólahraun. Marta Sigurðardóttir bæjarfulltrúi og Guðmundur Grétar Karlsson formaður Skógræktarfélagsins skrifuðu undir samninginn í Selskógi í gær á jólatrjáasölu félagsins sem tókst einstaklega vel.
Markmið samnings þessa er að stuðla að ræktun Landgræðsluskóga og tryggja íbúum sveitarfélagsins og almenningi svæði til útivistar um ókomna framtíð. Um er að ræða annars vegar skógræktarsvæðið, Selskóg við Þorbjörn og hins vegar nýtt land norður af Hópshverfi. Með uppgræðslu á hinu nýja landi gilda ákvæði þríhliða samnings á milli Grindavíkurbæjar, Skógræktarfélags Grindavíkur og Skógræktarfélags Íslands. Samningurinn gildir til 31.12.2018.
Mynd: Marta og Guðmundur Grétar skrifa undir samstarfssamninginn.