Að venju verður tendraður áramótabálköstur í Bót 31. desember kl. 20:30 en hann er í umsjá Grindavíkurbæjar og Björgunarsveitarinnar Þorbjarnar. Þau fyrirtæki sem ætla að gefa timbur í bálköstinn eru beðin um að hafa samband við Þjónustumiðstöðina (sími 426 8402 og 660 7318) áður en farið er með timbrið í Bót því starfsmaður frá Þjónustumiðstöðinni þarf að vera viðstaddur. Tekið verður á móti timbri í Bót föstudaginn 27.-30. desember.
Athygli er vakin á því að aðeins er tekið á móti hreinu timbri, ekki plastparketi, plastlögðum plötum, máluðu timbri o.s.fr.