Í dag er Fjörugur föstudagur. Fjöldi fyrirtækja við Hafnargötuna bjóða upp á notalega stemmningu, kynningar, flotta afslætti, ýmsar uppákomur og góðar veitingar. Glæsilegt happdrætti verður í gangi. Bæklingur með helstu upplýsingum hefur verið borinn í hús en hann má einnig nálgast hér.
Svo megum við nú ekki gleyma jólasveinunum sem sveima um Hafnargötuna frá klukkan 17 og gefa góðum börnum gott að smakka!
Í bæklinginn góða vantaði auglýsingu frá Olís. Í dag verður 10 kr. afsláttur hjá OB og fjórfaldir vildarpunktar.
Þá verður Jói útherji með ýmsan varning tengdan knattspyrnu í dag á Hafnargötu 7b, þ.e. Stanno vörurnar sem Grindavíkurliðin nota, allar Grindavíkurvörurnar, könnur merktar knattspyrnuliðum, Íslenska landsliðsbúninginn í knattspyrnu, dagatöl 2014 með ensku liðunum á, fótboltamyndir og möppur, bolta og margt margt fleira.
Opið verður í Kvikunni í dag frá kl. 16-20 og er ókeypis aðgangur.
Annars nánar um tilboð og afslætti í bæklingnum.
Tilvalinn dagur fyrir alla fjölskylduna.
Verið velkomin, því fjörið er á Hafnargötunni!