Á haustdögum var skólanum fært sófasett að gjöf frá eldri borgara bæjarins henni Petru Guðrúnu Stefánsdóttur, í daglegu tali kölluð Petta. Settinu var annars vegar komið fyrir í Hópsskóla og hins vegar í Grunnskólanum við Ásabraut.
Hluti af settinu fékk pláss í list- og verkgreinastofunni í Hópsskóla en einum sófa komið fyrir þar sem Jóhann Árni starfsmaður félagsmiðstöðvarinnar hefur aðsetur í skólanum. Gjöfin hefur vakið mikla lukku og fært ró yfir nemendur og kunna þeir vel að meta það að geta setið í þessu fína setti við saumaskapinn eða aðrar hannyrðir. Færum við Pettu og hennar aðstandendum bestu þakkir fyrir þessa frábæru gjöf. Grunnskólann vantar stundum eitt og annað til að skapa heimilislegan brag. Er fólki bent á að hafa skólann í huga ef það er í þeirri stöðu að þurfa að koma húsgögnum eða öðru þarfaþingi frá sér. Á myndunum má sjá hve vel sófarnir sóma sér en það gerir hún Petta skvísa líka í appelsínugula dressinu á Sjóaranum síkáta!