Sjötti bekkur æfir nú dans undir stjórn þriggja stúlkna í áttunda bekk. Dansinn hafa þær samið sjálfar við lagið Jólasveinar rokka en það lag æfir miðstigið að syngja. Nemendur í sjötta bekk höfðu val um hvort þeir vildu taka þátt í dansinum. Frímínútur verða nýttar til að æfa. Í dag byrjaði sjötti P og þótti ganga mjög vel. Þetta eru líka allt svo skapandi nemendur, verða að fá að syngja, dansa og hafa gaman í sjálfum jólamánuðinum. Dansinn verður sýndur og lagið sungið þegar úrslitakeppnin verður í spurningakeppninni á miðstigi.