Theodóra Thoroddsen skáldkona var fædd árið 1863 og lést um miðja 20. öldina. Hún var sérstaklega þekkt fyrir þulur sínar sem margar lifa góðu lífi. Í tilefni af Degi íslenskrar tungu myndskreyttu fjórðubekkingar í sameiningu þuluna Stúlkurnar ganga sunnan með sjó eftir Theodóru.
Þulur geyma mörg skemmtileg orð og þær eru vel til þess fallnar að fanga athygli þar sem þær breyta ótt og títt um myndir og alltaf eitthvað nýtt sem kemur skemmtilegt og óvænt. Á ganginum hjá 4. bekk má sjá þessar vandlega gerðu klippimyndir.