Aðstoðarmanneskju í eldhús vantar til starfa í leikskólanum Laut í Grindavík. Um 75 % starf er að ræða, Við erum „Skóli á grænni grein" og vinnum eftir Uppbyggingarstefnunni - Uppeldi til ábyrgðar. Gleði , hlýja og virðing eru einkunnarorð skólans.
Nánari upplýsingar um leikskólann er að finna á heimasíðu hans.
Hæfniskröfur:
• Færni í samskiptum.
• Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um á netfangið gleik@grindavik.is eða leikdal@grindavik.is . Nánari upplýsingar veitir leikskólastjóri í síma 426 8396.