Það er alltaf gaman að heimsækja gamla vinnustaðinn sinn og rifja upp gömul kynni. Milli leikskólanna og Grunnskólans er verkefni í gangi, Brúum bilið þar sem elsta stig leikskólans heimsækir Hópskóla og 1. bekkir endurgjalda heimsóknina á móti. 1. bekkur Hópskóla brá sér í Lautina og heimsótti gamla leikskólann sinn, Leikskólann Laut á dögunum. Nemendur voru fljótir að detta í gírinn og fundu jafnvel fyrir söknuði. Allir skiluðu sér til baka í skólann en með góðar minningar í farteskinu. Heimsóknin verður síðan endurgoldin seinna í vetur.