Undanfarið hafa leikskólarnir kíkt í heimsókn til okkar í tónlistarskólann.
Börnin hafa fengið að prófa hin ýmsu hljóðfæri og fengið kynningu á starfi skólans. Það vekur alltaf lukku hjá yngstu kynslóðinni að kíkja til okkar og alltaf er glatt á hjalla þegar við fáum svona svona skemmtilegar heimsóknir.