Starfsfólk Grunnskóla Grindavíkur í Hópsskóla hefur skipað árshátíðarnefnd og fyrsti fundur verið haldinn. Árshátíð Grindavíkurbæjar fer fram í Lava, hátíðarsal Bláa Lónssins, þann 29. mars næstkomandi og er starfsfólk bæjarins hvatt til þess að daga daginn frá.
Í árshátíðarnefnd sitja Ásrún Kristinsdóttir, María Eir Magnúsdóttir og Kristín Mogensen. Sviðsstjóri frístunda-og menningarsviðs er starfsmaður árshátíðarnefndar. Jafnframt hefur verið ákveðið að árshátíðarnefnd geri tillögu að hvaða stofnun taki við af hverjum til næstu ára.