Um liðna helgi fór fram miðnæturíþróttamót fyrir unglingadeildir Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Mótið fór fram í Vatnaskógi og mættu þangað rúmlega 250 manns úr 13 unglingadeildum víðsvegar að af landinu. Unglingadeildin Hafbjörg lét sig ekki vanta og var hópurinn mættur í Vatnaskóg um kvöldmatarleytið á föstudaginn.
Mótið hófst klukkan 20:00 og stóð það til klukkan 04:00 um nóttina þar sem meðal annars var keppt í körfubolta, fótbolta, kassabílarallýi, sveskjusteinaskyrpi, puttaprjóni, skák og pokahlaupi svo eitthvað sé nefnt. Það er gaman að segja frá því að unglingadeildin Hafbjörg gjörsigraði keppnina enda einstaklega góður hópur þarna á ferð.
Alls voru 21 þátttakendur frá unglingadeildinni Hafbjörg í Vatnaskógi sem komu heldur betur þreyttir til síns heima um kvöldmatarleytið á laugardaginn.
Miðnæturíþróttamót unglingadeilda SL er haldið ár hvert en tilgangur þess er að brjóta aðeins upp hefðbundið unglingastarf og gefa unglingadeildunum tækifæri til þess að hittast og gera eitthvað skemmtilegt.
Meðfylgjandi mynd var tekin af sigurliðinu ásamt umsjónarmönnum rétt fyrir brottför á laugardaginn.